HAGmark Markþjálfun

Hvað er markþjálfun?

Markþjálfun er samtal sem skerpir fókus, styrkir innri festu og styður þig í að taka stöðug skref í átt að þínum markmiðum.

Rammi og rými samtalsins

Markþjálfun byggir á trúnaði, virðingu og skýrum ramma. Tíminn er afmarkaður, markmiðin skýr og ferlið gagnsætt.

Skýr fókus og fagleg leiðsögn

Með markvissum spurningum, innsæi og faglegum verkfærum er unnið með það sem skiptir þig mestu máli.

Skref og ávinningur

Markþjálfun styður þig í að setja skýr markmið og taka raunhæf skref.
Ávinningurinn er aukin festa, fókus og jafnvægi – jafnt í forystu sem og í lífi og starfi.

Kveikjan að þínum árangri

“Leiðtogi sem hlustar og mætir fólki af einlægni byggir tengsl sem endast”

Hlustaðu inn á við
Markþjálfun hjálpar þér að tengjast eigin styrk, gildum og getu.
Hún dýpkar tengsl við innsæi og skerpir þann fókus sem þú byggir forystu og ákvarðanir á.

Innri styrkur – ytri áhrif
Í leiðtogamarkþjálfun styrkir þú hæfni þína til að leiða af heilindum og hafa jákvæð áhrif.
Við tengjum sjálfsþekkingu við samvinnu, áhrif og þá nærveru sem skapar traust og trúverðuga forystu.

Samstíga teymi
Teymismarkþjálfun styrkir traust, samskipti og sameiginlega stefnu teyma.
Þegar teymið vinnur samstíga verður samstarfið sterkari heild.

„Enginn er hyggnari en sá sem þekkir sjálfan sig“

Hrund Apríl

Markþjálfi

  • Markþjálfi frá Sofia Manning;” Life- and Business Coach” (ICF-vottað), sérhæfing í stjórnenda- og teymismarkþjálfun
  • Diplóma í jákvæðri sálfræði frá Háskóla Íslands
  • MS í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands
  • B.Ed. í leikskólakennarafræðum, Háskóli Íslands
  • Nám í uppeldisfræði frá Holstebro Pædagogseminarium, DK
  • Áralöng reynsla sem stjórnandi, kennari og ráðgjafi í samskipta- og mannauðsmálum
  • Fyrrverandi formaður Félags um jákvæða sálfræði

Hrund Apríl mætir fólki af einlægni, fagmennsku og með hlýjum húmor. Hún byggir markþjálfun sína á jákvæðri sálfræði og þeirri sannfæringu að styrkleikar, gildi og innri auðlindir séu öflugur drifkraftur sem styður fólk á vegferð sinni og færir það nær markmiðum sínum.

þjónusta

Hvað er í boði?

Einstaklingsmarkþjálfun

Samtöl sem styðja þig í að efla styrk, tengjast inn á við og vinna að persónulegum markmiðum með raunhæfum skrefum.

Leiðtogamarkþjálfun

Fyrir leiðtoga sem vilja þróa persónulegan leiðtogastíl, tengjast eigin gildum og styrkja eigin stefnu.

Teymismarkþjálfun

Fyrir teymi sem vilja efla traust, samvinnu og skýra sameiginlega stefnu með áherslu á samskipti, ábyrgð og árangur.

Markþjálfun á stofu

Persónulegt samtal í rólegu og hlýlegu umhverfi þar sem þín vegferð er í forgrunni.

Markþjálfun í gegnum netið eða síma

Sveigjanleg lausn sem hentar óháð staðsetningu, sami fókus, sami markþjálfastuðningur.

Göngumarkþjálfun

Markþjálfun á göngu þar sem náttúran styður við fókus, innri festu og skýrari sýn á næstu skref.

Tilbúin/n til að taka næsta skref?

Bókaðu samtal og fáðu rými til að hlusta inn á við, dýpka fókus og taka næstu skref á þinni vegferð.

Hafa samband

Netfang: hagmark@hagmark.is

Sími: 6662410

Trönuhraun 1
220 Hafnarfjörður